Landsleikur Orkumótsins 2026
26.06.2026Í kvöld fóru fram landsleikir Orkumótsins vegna fjölda liða og þar af leiðandi leikmanna þá eru leiknir tveir leikir samtímis. Leikar fóru þannig að Pressuliðið sigraði Landsliðið 6-3. Það var mikið um flott tilþrif í leikjunum og þó mörkin væru mörg þá voru markmenn liðanna í miklum ham og vörðu oft glæsilega. Mörk Pressuliðsins skoruðu Óðinn Helgi Fannarsson Þór Ak. 3 mörk. og eitt hver Ragnar Smári Fróðason Álftanesi, Elmar Ingvarsson Keflavík og Baldur Þór Magnússon Haukum. Fyrir landsliðið voru þessir á markaskónum með eitt hver Hilmar Berg Kristófersson FH, Theodór Leví Helgason Gróttu, Kári Leó Emilsson ÍA





