Frábær stemning á Prettyboitjokko

28.06.2024

Prettyboitjokko náði frábærri stemningu á kvöldvökunni í kvöld, greinilegt að keppendur eru í stórum aðdáendahópi hans. Reyndar var spennustigið svo hátt að rafmagnið fór af hljóðkerfinu og hann náði ekki að klára síðustu tvö lögin sín. Okkur þykir ótrúlega leiðinlegt hvað kvöldvakan tók snöggan endi en því miður voru þetta tæknilegir örðuleikar sem við réðum ekki við.