SportHero

26.06.2024

SportHero verður á svæðinu líkt og undanfarin ár, en verða núna með aðstöðu í íþróttahúsinu, sal 1.

Teknar verða myndir af öllum keppendum í leikjum fimmtudagsins og á föstudag verða liðsmyndatökur fyrir utan sundlaugina kl. 9:00-17:00 og hvetjum við liðin til að kíkja þangað í myndatöku strax eftir fyrsta leik.

 

Fyrirvari vegna myndatöku á Orkumótinu
 
Hluti af Orkumótinu er myndataka frá setningu mótsins, leikjum keppenda og stemningunni af hliðarlínunni. Frá árinu 2011 hefur SportHero séð um að varðveita sögu mótsins með myndatöku á þátttakendum og umgerð Orkumótsins. Mótið er allt myndað við bestu aðstæður og geta foreldrar nálgast myndir af barni sínu á merktu svæði á mótinu sem og nálgast myndirnar af heimasíðu SportHero eftir að mótinu líkur. 
 
Allir þátttakendur fara með liði sínu í liðsmyndatöku og að loknu móti gefst forráðamönnum kostur á að nálgast myndirnar af liði sínu án endurgjalds, af heimasíðunni www.sporthero.is 
 
Með þátttöku á Orkumótinu er forráðamönnum því ljóst að barn þeirra verður að öllum líkindum myndað og þeir samþykkir því og myndir birtast af börnum þeirra, þeim til nálgunnar á mótinu eða af heimasíðu SportHero. 
 
Til þeirra forráðamanna sem ekki vilja að barn þeirra sé myndað, er þeim bent á að senda póst á afskraning@sporthero.is og tilgreina nafn nafn barns, lið, númer á treyju og leiktíma liðsins svo hægt sé að verða við óskum um að barn sé ekki myndað. Frekari fyrirspurnum um myndatöku er einnig hægt fá svör við með pósti á johann@sporthero.is eða með símtali í síma: 662-1111