Sundlaugin - bókanir

26.06.2023

Hægt verður að bóka fyrir liðin í sund á noona.is. Opnað veður fyrir bókanir á eftirfarandi tímum:

  • Á þriðjudag fyrir miðvikudag.
  • Á miðvikudag fyrir fimmtudag.
  • Klukkan 18:00 á fimmtudag fyrir föstudag.
  • Klukkan 18:00 á föstudag fyrir laugardag.

Setja þarf nafn liðs í reitinn sem vanalega er fyrir nafn þess sem bókar.

  • Liðin þurfa að ákveða hver sér um að panta fyrir þau í sund, svo þau eigi ekki marga tíma bókaða.
  • Hvert lið hefur 40 mín frá því að hleypt er inn í klefa og þangað til þau þurfa að vera komin upp úr lauginni.
  • Mikilvægt er að mæta á réttum tíma, þar sem tíminn telur frá bókaða tímanum.
  • Tilkynna þarf komu sína í afgreiðslu og fá úthlutuðum klefa.
  • Innifalið í mótsgjaldi er 3x sund, þegar keppendur koma með liðinu, sýna þarf armband í afgreiðslu.