Gróðursetning

22.06.2023

Undanfarin ár hefur Orkan gefið Vestmannaeyjabæ plöntur sem félögin hafa gróðursett á Orkumótinu. Í ár var ákveðið að breyta til og gróðursettu strákar í 6. fl. kk ÍBV tré í morgun fyrir hvert félag sem kemur á mótið þ.e. 35 stk. Trén voru sett niður sunnan við íþróttahúsið og voru þetta þrjár tegundir Reynir Dó Dong, Hlynur og Súlureynir. Strákarnir voru spenntir fyrir verkefninu og hlakka til að fylgjast með trjánum vaxa og dafna í Orkuskóginum, en þeir eru ekki minna spenntir fyrir því að taka á móti öllum félögunum sem mæta til Eyja í næstu viku, en fyrstu leikir Orkumótsins hefjast kl. 8:20 fimmtudaginn 29. júní.