Við minnum öll félögin á að mæta við Barnaskólann fyrir neðan Landakirkju eigi síðar en 18:45 þar sem haldið verður í skrúðgöngu að Týsvellinum kl: 19:00.
Leikjaplan föstudagsins kemur inn á orkumot.is vel fyrir kl. 18:00 í dag að öllu óbreyttu.
Orkumótið í Vestmannaeyjum
25. - 27. júní 2026
Orkumótið hefur verið haldið árlega frá árinu 1984. Á mótinu keppir 6. flokkur karla, eldra ár, í knattspyrnu og hafa margir af bestu knattspyrnumönnum landsins tekið þátt í mótinu á sínum yngri árum.