Bátsferðir falla niður miðvikudag og fimmtudag
21.06.2022Því miður þurfum við að aflýsa öllum bátsferðum/skemmtisiglingum sem áttu að vera á morgun og fimmtudag vegna veðurs.
Okkur finnst þetta ótrúlega leiðinlegt, en í staðin ætlum við að bjóða öllum þátttakendum að skoða mjaldrana, Litlu Hvít og Litlu Grá, á Sea Life Trust.
Við notumst við bátsferðarplanið, þannig að ef lið átti að fara í bátsferð kl. 8:00 þá fer það í staðin á Sea Life Trust, sjá hér.