Gisting
16.06.2021Gist er á átta stöðum víðsvegar um bæinn og er þeim skipt upp í tólf sóttvarnarhólf, hér er hægt að sjá gistiplan.
Við biðjum ykkur um að fara eftir þessum reglum:
- Notið aðeins þann inngang sem er merktur ykkur á gistiplaninu.
- Ekki fara á milli sóttvarnarhólfa.
- Aðeins þeir sem eru með armband geta farið inn í gistingu.
- Það er leyfilegt að hafa 1-2 fararstjóra á lið (þeir sem eru með armband), þessir fararstjórar verða að hjálpa strákunum að koma sér fyrir, foreldrar geta ekki farið inn í skólann til að blása upp dýnu, rúlla út svefnpoka oþh.
- Foreldrar geta ekki farið inn í skólann ef eitthvað gleymist, aðeins fararstjóri með armband getur það.
- Foreldrar geta ekki farið inn í skólann til að tala við son sínn/kyssa hann góða nótt, þeir þurfa að hringja í fararstjórann og biðja um að sonurinn hitti þá fyrir utan skólann.
- Ekki láta armband fararstjóra ganga á milli nema það sé skráð í vaktaplan sem var skilað til mótsstjórnar fyrir mótið.
- Ekki er leyfilegt að hafa sameiginlegt nestisrými í skólunum og þar af leiðandi er ekki ísskápur fyrir félögin að geyma nesti í.
- Ekki er leyfilegt að vera með samlokugrill inni í stofunum í skólunum, rafmagnið ræður ekki við það, slær út og brunakerfi fer í gang.
- Kæligámur er við Herjólfshöllina sem allir geta geymt nesti.
ATHUGIÐ!
Þessar reglur eru settar af sóttvarnarástæðum. Ef upp kemur smit í skólunum þá getur smitrakningarteymi fengið allar upplýsingar hjá okkur þ.e. hverjir hafa verið í gistingu og á hvaða stað í skólanum, einnig getur það fækkað þeim sem þyrftu að fara í sóttkví.
Þeir sem eru á vöktum í skólunum eru sjálfboðaliðar á vegum félagsins sem eru allir af vilja gerðir til að aðstoða ykkur, við biðjum ykkur um að sýna þeim kurteisi.