Mótsgjald 2019
13.05.2019Eindagi fyrir mótsgjald 20.500.- kr. sem greiðist fyrir hvern þátttakenda er 17. maí, eftir það hækkar gjaldið í 21.500.- kr.
Þátttakendur eru:
- Allir leikmenn
- Allir þjálfarar og fararstjórar sem gista og eru í mat á vegum Orkumótsins
Gerð er krafa um að greitt sé fyrir 2 fullorðna á fyrstu 3 liðin og svo 1 fullorðinn á hvert lið umfram það.
Athugið að þetta er lágmark!
Dæmi:
- Félag sem kemur með 1 lið borgar lágmark fyrir 2 fullorðna
- Félag sem kemur með 2 lið borgar lágmark fyrir 4 fullorðna
- Félag sem kemur með 3 lið borgar lágmark fyrir 6 fullorðna
- Félag sem kemur með 4 lið borgar lágmark fyrir 7 fullorðna
- Félag sem kemur með 5 lið borgar lágmark fyrir 8 fullorðna
Mótsgjaldið greiðist með millifærslu inn á reikn. 582-26-3234 kt. 680197-2029 og sendið kvittun á sigfus@ibv.is
Í skýringu þarf að taka fram fyrir hvaða lið er greitt og fjölda strákar/þjálfarar/fararstjórar dæmi: (KR 20+3+3)
Einnig biðjum við ykkur um að senda fyrir 7. júní:
- Nafnalista liðsstjóra fyrir hvert lið ásamt gsm númeri
Þegar allir hafa greitt mótsgjaldið getum við farið að raða niður í gistirými. Stærð gistirýma miðast við þann fjölda sem greitt hefur verið fyrir hjá hverju félagi.
Einnig viljum við minna þá sem eiga eftir að ganga frá Herjólfsferðum að drífa í því með því að senda póst á herjolfur@herjolfur.is
ATH! Kostnaður við Herjólfsferðir er ekki innifalið í mótsgjaldinu. Við tökum aðeins frá pláss í skipinu til að allir komist til og frá Eyjum