Hópmyndataka föstudag kl. 9:00 - 17:00

29.06.2017

Ákveðið er að hópmyndataka verði framan við sundlaugina á föstudaginn kl. 9:00 til 17:00 ATHUGIÐ aðeins þessi tími, engar hópmyndir utan þessa tíma.

Hópmyndirnar eru ókeypis í boði Skeljungs.

Lið þurfa að finna sér tíma milli leikja til að mæta í myndatöku.

Myndatökur verða af hverju liði, en líka hópmynd með liði, öllum foreldrum og systkinum liðsfélaga sem stödd eru á Eyjunni.

Allir sem eru festir á hópmynd, strákar, foreldrar og systkini, fá eitt fótboltaspil með Fálkunum.