Orkumótið 2017 - uppselt
10.12.2016Öll félög sem voru á Orkumótinu 2016 hafa skilað inn beiðni um þátttöku á mótinu 2017 og áætlaðan liðafjölda sem þau hafa áhuga að koma með á mótið. Það eru beiðnir um töluvert fleiri lið en við höfum möguleika að bjóða þátttöku, þannig að við þurfum að skoða hvað er möguleiki að hafa mörg lið á mótinu 2017. Um miðjan janúar munum við senda félögum hvað hvert félag getur komið með mörg lið á Orkumótið og biðjum um staðfestingu 2. febrúar 2017.
Vinnureglan um liðafjölda inn á Orkumótið :
1. Að öll félög sem sækja um þátttöku fái amk eitt lið inn á mótið. |
|||
2. Allir á eldra ári komist á mótið. |
|||
3. Ef félag kemur með blandaðan hóp, eldra og yngra árs, fær félagið hámark 3 lið inn á mótið við fyrstu úthlutun. |
|||
4. Að fjöldi leikmanna sé um 9 í hverju liði að meðaltali. |
|||
5. Að amk 2 fullorðnir verði skráðir þátttakendur á mótið með hverju liði. |
|||
|